Þessa súpu er ég búin að gera nokkrum sinnum og hún er alltaf jafn góð, og auðvitað er hún ekki síðri daginn eftir!

Mynd af sjóræningjasúpu með hakki

Ljósmynd: www.all-free-download.com

  • 5 kartöflur, flysjaðar og skornar í bita
  • ½ – 1 sæt kartafla, flysjuð og skorin í bita
  • 1 laukur, saxaður smátt
  • 2-3 hvítlauksrif, söxuð smátt
  • ólífuolía
  • 1,5 lítrar nautakraftur (eða vatn og kjötkraftur)
  • 1 gul paprika, skorin í bita
  • 1 rauð paprika, skorin í bita
  • 3 gulrætur
  • 500-600 g hakk
  • 2-3 dl tómatasósa (eða t.d. Jamie Oliver tómat/basiliku pastasósu, 1 krukka)
  • 1 tsk cumin
  • 2 tsk paprikuduft
  • 2 tsk oregano
  • salt og pipar
  • 1-2 tsk sambal oelek eða annað chilimauk (mjög sterkt!)
  • Sýrður rjómi

Laukur og hvítlaukur er steiktur upp úr olíu í stórum potti þar til laukurinn er orðin mjúkur. Þá er hakkinu bætt út í og það steikt. Því næst er paprikunni og gulrætunum bætt út í ásamt tómatsósunni og kryddunum. Svo er nautakraftinum bætt út í. Suðan er látin koma upp og þá er kartöflubitarnir og sætu kartöflubitarnir settir út í og súpan látin malla í ca. 15 mínútur eða þar til kartöflurnar eru soðnar. Súpan er smökkuð til með salti, pipar, sambal oelek og fleiri kryddum ef þarf.

Súpan er borin fram með sýrðum rjóma.